27.06.2010 11:18
Stóðhestar 2010
Jæja, loksins kemur ný frétt! Ýmislegt er verið að brasa á Lækjamóti eins og fyrri daginn. Vinna í grunninum að nýja húsinu, áfram verið að smíða og vinna í nýja hlutanum af hesthúsinu, járningar og svo auðvitað hrossaræktin og vinna í kringum stóðhestahald og eftirlit. Sökum hóstapestarinnar ákváðum við að í ár yrðu ræktunarhryssurnar okkar heima, viljum ekki leggja á þær það álag sem fylgir flutningi. Svipuð stemning og í gamla daga, áður en akstur með stöku hryssu yfir landið þvert og endilangt kom til. Það ætti þó ekki að koma að sök þar sem við erum með góða hesta á okkar vegum í ár, þar á meðal tvo Landsmótssigurvegara. Þrír stóðhestar eru um þessar mundir í hólfi á Lækjamóti og mun sá fjórði væntanlega bætast við um eða eftir næstu helgi. Margar af okkar bestu hryssum eru þó ekki kastaðar en þær fara vonandi að drífa í því og komast því vonandi í hólf fyrr en seinna.
Vilmund frá Feti þarf vart að kynna fyrir hestamönnum. Hann er með 8.56 í aðaleinkunn og þar af 8.95 fyrir hæfileika og stóð efstur í flokki 5 vetra hesta á LM 2006. Hann er undan Orra frá Þúfu og Vigdísi frá Feti. Kynbótamat hans er hvorki meira né minna en 129! Gaman er að fylgjast með honum í hryssum, en hann heldur vel utan um hópinn sinn og það er mikil ró yfir öllu. Engin læti eða slagsmál.
Blysfari frá Fremra-Hálsi kemur svo um næstu helgi en stefnt er á að fara með hann í dóm á Vindheimamelum nú í vikunni. Frekari upplýsingar um Blysfara munu birtast hér á síðunni í vikunni.
Endilega hafið samband ef þið viljið fá frekari upplýsingar um eitthvað í tengslum við stóðhestana. [email protected] eða í síma 899-9570.
Hér eru nokkrar myndir af makindalegum hryssum og folöldum sem eru í stóðhestahólfi á Lækjamóti.
Mikilvægt er að hafa gott eftirlit eftir öllum þeim hryssum sem eru nú í okkar umsjá. Þórir lítur hér eftir óköstuðu hryssunum en þar á meðal er Toppa frá Lækjamóti sem er fylfull við hinum unga albróður Vilmundar, Werner frá Feti.
Látum þetta gott heita að sinni.
Ræktunarkveðja frá Lækjamóti.
Skrifað af Lækjamót
Flettingar í dag: 236
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 759
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 556793
Samtals gestir: 58128
Tölur uppfærðar: 5.2.2025 12:37:59
LÆKJAMÓT | 531 HVAMMSTANGI -
ÍSLAND | +354 4512570 | [email protected]