09.06.2012 21:33
Fleiri hross komin inn á landsmót
Í dag fór fram gæðingamót og úrtaka fyrir landsmót hjá hestamannafélaginu Þyt á Hvammstanga. Vel gekk hjá Lækjamótsfólkinu og unnu alls 4 hross sér þátttökurétt á Landsmóti. Hjá Ísólfi bættust við 3 inn á landsmót. Í B-flokki urðu Kristófer og Kvaran í 1. og 2. sæti, Kristófer með 8,42 og Kvaran með 8,41.
Ísólfur og Kristófer á Landsmóti á Vindheimamelum 2011
Ísólfur og Kvaran í dag
Í A-flokki varð Ísólfur í 3.sæti með Álfrúnu í Víðidalstungu með 8,28 og þar með inná landsmóti.
Ísólfur og Álfrún frá Víðidalstungu II í dag.
Í unglingaflokki stóð Birna sig einnig frábærlega, stendur efst eftir forkeppni með 8,17. Og þar með einn í viðbót á Landsmót
Birna og Jafet í sveiflu
Á gæðingamótinu fór einnig fram töltkeppni. Gekk mjög vel þar, Ísólfur sigraði á Freyði frá Leysingjastöðum II með 7,50 og Vigdís varð í 3-4 sæti 6,33.
Kvaran frá Lækjamóti keppti líka í tölti og hlaut 6,67 í forkeppni.
Ísólfur og Freyðir (tekið á íþróttamóti Skugga í vor)
Vigdís og Sögn frá Lækjamóti
Skrifað af Lækjamót
Flettingar í dag: 343
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 759
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 556900
Samtals gestir: 58143
Tölur uppfærðar: 5.2.2025 12:59:02
LÆKJAMÓT | 531 HVAMMSTANGI -
ÍSLAND | +354 4512570 | [email protected]