29.12.2014 20:50
Samantekt ársins 2014 í máli og myndum
Það er ekki ofsögum sagt að árið 2014 hafi verið viðburðarríkt á Lækjamóti og hjá meðlimum Lækjamótsfjölskyldunnar. Með annál þessum langar okkur að taka saman í stuttu máli það helsta sem hefur gerst á árinu og um leið óska öllum vinum, ættingjum og öðrum dyggum lesendum gleðilegs nýs árs með kærri þökk fyrir það liðna.
Keppnistímabilið byrjaði með látum, fyrsta mót ársins var eitt sterkasta innimót ársins, fjórgangur í Meistardeild Vís og fyrstu úrslit ársins staðreynd. Ísólfur átti eftir að vera næstu vikur og mánuði á faraldsfæti þar sem hann keppti í báðum meistaradeildum landsins KS og VÍS. Með góðu skipulagi og stuðningi vina og fjölskyldu sem öll lögðust á eitt að láta allt ganga upp tókst Ísólfi að mæta á öll mótin og árangur í báðum deildum glæsilegur, samalagður sigurvegari í KS deildinni og 6.-7. sæti í Meistaradeild VÍS. Vigdís tók einnig stórt skref á árinu í að auka keppnisreynslu, auk minni móta tók hún þátt í KS deildinni, komst þar í ein A-úrslit og lagði helling inn á reynslubankann.
Um það leiti sem útimótin voru að hefjast og fyrstu folöldin að koma í heiminn sýndi Ísólfur hryssuna Vík frá Lækjamóti í kynbótadóm. Vík er 4. vetra hryssa undan Óm frá Kvistum og Breytingu frá Lækjamóti, ræktuð af og í eigu Þóris Ísólfssonar. Vík hreif alla með sér fór á fyrstu sýningu í 8,19 fyrir hæfileika, fór á Landsmót og hækkaði þar í 8,30 fyrir hæfileika. Síðsumars átti svona annar 4.vetra gullmoli, Ósvör frá Lækjamóti, eftir að fara í frábæran dóm, 8,02 fyrir hæfileika. Ógleymanlegar stundir sem við upplifum vonandi aftur seinna.
En það voru ekki bara skemmtilegar stundir á keppnis-og kynbótabrautinni. Sonja, Friðrik og Jakob fluttu heim á Lækjamót frá Danmörku. Sonja útskrifaðist sem dýralæknir og er nú þegar orðin eins og aðrir dýralæknar, alltaf á þönum og nóg að gera. Friðrik sinnir tamningu, þjálfun og kynbótadómarastörfum og Jakob litli heillar alla og nýtur góðs af því að hafa ömmu og afa í sama húsi.
|
||||||||||||||||||
Keppnin hélt áfram og auk minni móta var farið á tvö sterkustu mót ársins, Landsmót og Íslandsmót. Árangur á þeim mótum var mjög góður, á Landsmóti var Ísólfur í þremur úrslitum og bar þar hæst A-úrslit í tölti á Kristófer frá Hjaltastaðahvammi. Á Íslandsmóti komst Ísólfur einnig í úrslit í öllum þeim greinum sem hann tók þátt í og átti margar glæsilegar sýningar.
|