29.03.2015 19:13
hestamót og leiksýning
Það hafa nokkur mót farið fram síðan síðast var ritað. Töltkeppni Meistaradeildar VÍS fór fram 12. mars. Ísólfur keppti þar á Flans frá Víðivöllum fremri. Flans kom til okkar í ágúst 2014 og hefur gengið vel að þjálfa hann í vetur. Æfingar fyrir töltkeppni gengu einnig vel en því miður var Flans ekki í stuði þetta kvöld og komust þeir ekki í úrslit.
Húnvetnska liðakeppnin hélt einnig áfram í mars, fimmgangur var næsta á dagskrá. Þar fóru Ísólfur og Vigdís með tvær ungar hryssur Glóey frá Torfunesi og Orrustu frá Lækjamóti. Þær komust í hringina og lærðu mikið af þessu. Alltaf gaman að prófa ný hross, læra betur á þau og auka við reynslu þeirra. Í yngri flokkunum var keppt í tölti. Þar fór Karítas okkar með Björk frá Lækjamóti í unglingaflokki, sigraði glæsilega með 6,58. Ungur og efnilegur drengur, Eysteinn Tjörvi Kristinsson hefur undanfarnar vikur komið í reiðtíma til okkar og hjálpað til við ýmis verk í hesthúsinu. Hann fékk lánaða hjá okkur gæðinginn Sýn frá Grafarkoti. Þau sigruðu barnaflokkinn með 6,17. Í pollaflokki mætti Guðmar okkar galvaskur að vanda með Valdísi frá Blesastöðum 1A en þau eru frábærir félagar og alltaf flott saman.
Karítas og Björk frá Lækjamóti sigruðu tölt í unglingaflokki |
Eysteinn og Sýn frá Grafarkoti sigruðu tölt í barnaflokki |
22.mars brunuðu Ísólfur og Vigdís norður á Akureyri til að taka þátt í Stjörnutölti en sú keppni var nú færð inn í glæsilega reiðhöll Léttismanna á Akureyri en hefur fram að þessu verið í skautahöllinni. Ísólfur keppti á Flans frá Víðivöllum Fremri og Vigdís á Sögn frá Lækjamóti. Áður en keppnin hófst var Ísólfur með sýnikennslu í gæðingafimi. Mætti hann með Kristófer frá Hjaltastaðahvammi, sagði frá helstu grunn- og skyldu æfingum og útskýrði hvernig æfingarnar væru gerðar. Í lokinn sýndi hann prógrammið sem skilaði þeim sigri í MD VÍS en um leið og þeir sýndu prógrammið útskýrði Ísólfur hvað hann var að gera.
Keppnin fór þannig að Vigdís og Sögn komust í b-úrslit og enduðu í 6.sæti en hjá Ísólfi og Flans gekk nú allt upp og þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu með einkunnina 7,94.
Ísólfur og Flans frá Víðivöllum fremri sigruðu Stjörnutölt 2015
|
28.mars var förinni heitið suður til Reykjavíkur en þar fór fram Meistaradeild VÍS og að þessu sinni tvær skeiðgreinar, 150 m. og gæðingaskeið. Ísólfur keppti á Sólbjarti frá Flekkudal í gæðingaskeiði. Aðstæður á vellinum hentuðu Sólbjarti illa, snjór og klaki var yfir brautinni og Sólbjartur vildi ekki beita sér almennilega, fór meira upp en áfram. Niðurstaðan 14.sæti í gæðingaskeiði að þessu sinni. í 150 m. keppti Ísólfur á Stygg frá Akureyri en hún er flugvökur Kjarvalsdóttir sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þetta var frumraun þeirra í kappreiðum en Stygg elskar að skeiða og það skilaði góðum tíma og 9.sæti í keppninni sem skilaði 2 stigum. Ísólfur er því núna þegar tvær greinar eru eftir í Meistaradeild VÍS í 2.sæti einstaklingskeppninnar með 32 stig.
Á meðan foreldrarnir fara um land allt á hestamót hefur eldri sonur Ísólfs og Vigdísar hann Ísak Þórir staðið sig frábærlega á leiksviðinu en hann fór með eitt aðalhlutverkið í söngleiknum Thriller sem sett var á svið hjá Grunnskóla Húnaþings vestra núna í mars. Foreldrarnir gætu ekki verið stoltari af þessum flotta strák sem leikur og syngur eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Ísak Þórir Ísólfsson að syngja og leika í leikritinu Thriller |
Það reynir mikið á Ísak á sviðinu en hann sýnir reiði, gleði, sorg og ofsa hræðslu í hlutverki sínu |